|
Nýlega var haldin samkeppni um kennimerki „lógó“ félagsþjónustunnar og voru þó nokkuð margar tillögur sendar inn. Valið var erfitt þar sem allar tillögurnar voru vandaðar, hugmyndaríkar og skemmtilegar. Hins vegar þarf alltaf að velja eina og bar Friðlaugur Jónsson sigur úr býtum. Tillaga hans var með skírskotun í galdratákn og byggðasögu svæðisins með nútímalegri nálgun. Upphafsstafir Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla (FSR) eri í kennimerkinu auk þess sem 4 hlutar mynda þau fjögur sveitarfélög sem mynda félagsþjónustuna en það eru Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur og Strandabyggð. Græni hlutinn táknar notendur félagsþjónustunnar.
|
|
Nánar...
|
|
|
Reglur um liðveislu og félagslega heimaþjónustu |
|
Velferðarnefnd Stranda og Reykhólahrepps og sveitarstjórnir Árneshrepps, Kaldrananeshrepps, Reykhólahrepps og Strandabyggðar hafa samþykkt reglur um félagslega heimaþjónustu og liðveislu. Samþykkt var að byrja að taka tekjutengt gjald fyrir félagslega heimaþjónustu eins og hjá öðrum sveitarfélögum landsins. Reglurnar verða settar inn á heimasíðu sveitarfélaganna ásamt umsóknareyðublöðum. Sækja skal um þjónustuna til félagsmálastjóra.
Með kveðju,
Hildur Jakobína Gísladóttir Félagsmálastjóri Stranda- og Reykhólahrepps Höfðagötu 3, 510 Hólmavík Sími: 451-3510 / 842-2511
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða kominn út |
Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2011-2012 er kominn út og verður dreift í öll hús á Vestfjörðum á næstu dögum. Þar er að finna yfirlit yfir þau námskeið og námsleiðir sem búið að er ákveða að bjóða upp á í vetur. Eins og alltaf er fjölbreytnin í fyrirrúmi og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. Rétt er að hafa í huga að alltaf bætist eitthvað við sem ekki hefur náð inn í Námsvísinn. Það er því um að gera að fylgjast með á vef Fræðslumiðstöðvarinnar þar sem er að finna upplýsingar um öll námskeið. Hægt er að skrá sig á námskeið á vef Fræðslumiðstöðvarinnar en einnig er hægt að hafa samband í síma 456 5025. |
|
|
Vestfjarðavíkingurinn 2011 |
|
Vestfjarðavíkingurinn, keppni sterkustu manna landsins fer fram dagana 7 til 9 júlí og fer hún fram víðsvegar um Vestfirði á þessum þremur dögum.
Keppt verður á eftirtöldum stöðum.
Fimmtudagur 7. Júlí kl 13:00 Hólmavík ( Galdrasafnið ) kl 15:30 Drangsnes ( Íþróttavöllur ) kl 18:00 Mjóifjörður ( Heydalur )
Föstudagur 8. Júlí kl 12:00 Súðavík ( Raggagarður ) kl 15:00 Suðureyri ( Sjöstjörnunni ) kl 18:00 Bolungarvík ( Ósvör )
Laugardagur 9. Júlí kl 12:00 Þingeyri ( Sundlauginni ) kl 13:00 Þingeyri ( Víkinga svæðið ) kl 16:00 Ísafjörður ( Silfurtorginu )
www.kraftamenn.is |
Heimasíða Fjölmenningarseturs hefur verið uppfærð og er nú á átta tungumálum. Auk íslensku er búið að þýða hana yfir á ensku, pólsku, króatísku, tailensku, spænsku, rússnesku og litháísku. Á síðunni má finna upplýsingar um Ísland og íslenskt samfélag. Áhersla er lögð á að fólk sem flyst til landsins erlendis frá geti kynnt sér réttindi sín og skyldur og nálgast upplýsingar um hverdagslega hluti á auðveldan hátt. Á síðunni er sérstakt sveitarfélagaviðmót þar sem finna má upplýsingar um helstu opinbera þjónustu í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Orðskýringar eru einnig á vefnum sem hafa nú verið þýddar á sjö tungumálum. Síðan getur nýst starfsfólki sveitarfélaga og stofnana til að aðstoða útlendinga því alltaf er hægt að sjá á íslensku hvað verið er að þýða í hverju tilviki.
Fjölmenningarsetur hefur það hlutverk að greiða fyrir samskiptum fólks af ólíkum uppruna og efla þjónustu við innflytjendur sem búsettir eru á Íslandi. Hjá Fjölmenningarsetri er hægt að leita eftir upplýsingum um margt er varðar daglegt líf á Íslandi, stjórnsýsluna og leita eftir aðstoð varðandi flutning til og frá Íslandi. Fjölmenningarsetur starfrækir upplýsingasíma á pólsku, serbnesku/króatísku, taílensku, spænsku, litháísku og rússnesku |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 10 |