| Veiðifréttir |
|
Fóru þau systkinin Þórdís Adda Haraldsdóttir og Baldur Steinn Haraldsson ásamt Hafdísi Baldursdóttir að veiða en svo kom Ingólfur Árni seinna og vitið menn Baldur Steinn setti í eina væna Bleikju sem var tvöpund rétt hjá Djúpaskurði og veiddi hann á sjálfan Íslandsspúninn þetta er fyrsti fiskurinn sem hefur komið upp úr ánni svo að ég viti þar sem Kaldranans hreppur gaf Stangirnar til fólksins í hreppnum. Því sendi ég myndir af Baldur Steini með Bleikjuna á puttanum eins og sannir fiskimenn gera. En til hamingju með nýja vefinn Drangnes.is og farnist honum vel í framtíðinni því sendi ég mitt innlegg til að styrkja hann. Bið að heilsa, Árni Þór Baldursson, Odda |