| Mugison á Hótel Laugarhóli |
|
Tilefnið er útgáfa á nýjum hljómdiski, HAGLÉL, en diskurinn er jafnframt sá fyrsti úr smiðju MUGISON þar sem allir textar eru á íslensku. Það gleður landann að heyra unga sem aldna kyrja á ástkæra ylhýra… STINGUM AF…, en eins og heimamenn muna glöggt var þetta geysivinsæla lag frumflutt á fyrstu tónleikum MUGISON og félaga á Hótel Laugarhóli í fyrrasumar. HAGLÉL hefur sannarlega slegið í gegn, trjónir hátt á vinsældarlistum viku eftir viku, og uppselt á fjölmarga útgáfutónleika sem haldnir hafa verið að undanförnu vítt og breitt um landið. Gagnrýnendur hafa einróma lofað þessa nýjustu afurð Vestfjarða-víkingsins og tónleikhaldið í kjölfarið, og væri gaman að sjá Strandamenn sem og aðra ævintýraþyrsta landsmenn fjölmenna á þessa frábæru tónleika. Þar sem hótelhaldarar á Laugarhóli gera að sjálfsögðu ráð fyrir mikilli aðsókn, og sætafjöldi er takmarkaður, eru menn hvattir til að tryggja sér miða ekki seinna en strax á www.mugison.is Miðaverð er 2500 kr. og um að gera að láta ekki þennan einstaka tónlistarviðburð fram hjá sér fara. Fyrir þá sem þess óska er gisting í boði á Hótel Laugarhóli á sérstökum vildarkjörum þetta kvöld. Tveggja manna herbergi, uppbúin rúm með baði og morgunverði kostar 11700 kr. (5850 kr. á mann) og án baðs með morgunverði 9000 kr. (4500 kr. á mann). Einnig er boðið uppá kvöldverð, ljúffengt lasagna með heimabökuðu brauði, grænmetissalati og kaffi fyrir 2700 kr. á mann (500 kr. auka afsláttur fyrir hótelgesti). Nauðsynlegt er að panta mat og/eða gistingu fyrirfram og í síðasta lagi miðvikudaginn 9. nóvember. Einar hótelstjóri tekur á móti pöntunum í síma 451-3380 / gsm. 698 5133 eða með tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. VERIÐ HJARTANLEGA VELKOMIN! |