|
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps 1 árs ! |
|
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps er 1 árs í dag. Hún er eins og flest eins árs gömul börn bæði farin að standa upp og ganga með en þarf tíma til að þroskast og dafna. Félagsmálastjóri var ráðinn í 70 % starf frá 1. febrúar 2011 og hefur byggt upp félagsþjónustuna síðasta árið. Þeir málaflokkar sem félagsþjónustan sinnir er, barnavernd, félagsleg ráðgjöf, félagsleg heimaþjónusta, fjárhagsaðstoð, málefni aldraðra og málefni fatlaðra.
|
|
Nánar...
|
|
|
Dagskrá Bryggjuhátíðar 2011 |
10:00-11:00 Dorgveiði Kokkálsvík Grímseyjarsund - Sjósundgarpar stinga sér til sunds frá Grímsey og synda í land. 11:00 Grímseyjarsiglingar með Sundhana 12:30 Sjávarréttasmakk við frystihúsið og nikkan hljómar. Markaðsstemming í tjaldinu. 13:00 Grásleppusýning í Framtíðinni -fyrir utan Forvaða. Myndlistarsýningar, gömlu myndirnar og kaffihús í skólanum. Strandahestar. Hoppukastali. 14:30 Vináttulandsleikur í fótbolta Drangsnes – Hólmavík á fótboltavellinum 16:00 Söngvarakeppni krakkanna, Samkomuhúsinu Baldri 18:00-19:30 Grillveisla, Samkomuhúsinu Baldri 20:30 Kvöldskemmtun í Samkomuhúsinu Baldri 22:00 Varðeldur með Ragga Torfa við fótboltavöllinn 23:00 Jogvan Hansen skemmtir á Malarkaffi 23.30 Bryggjuhátíðarballið – Stuðlabandið sér um stuðið |
|
Aðalskipulag Kaldrananeshrepps |
|
Hér er Aðalskipulag Kaldrananeshrepps. Neðan við skipulagsskjölin má sjá gögn frá Veðurstofu Íslands um snjóflóðahættu og mat á henni. Smellið á nánar... til að sjá öll skjölin.
|
|
Nánar...
|
|
Til að sjá úthutun veiðidaga í Bjarnarfjarðará, smellið á lesa meira hér fyrir neðan.
|
|
Nánar...
|
|
Kjörfundur v. Icesave, 2011 |
|
Kjörfundur verður í Grunnskólanum á Drangsnesi og stendur frá 10.00 til 18.00
Auglýsing um þjóðaratkvæðagreiðslu 9. apríl 2011
Þjóðaratkvæðagreiðsla skal fara fram hinn 9. apríl 2011 um gildi laga nr. 13/2011 um heimild til handa fjármálaráðherra til að staðfesta samninga, sem áritaðir voru í London 8. desember 2010, um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta til breska og hollenska ríkisins á kostnaði af greiðslu lágmarkstryggingar til innstæðueigenda í útibúum Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi og Hollandi og greiðslu eftirstöðva og vaxta af þeim skuldbindingum. Lög nr. 13/2011 voru samþykkt á Alþingi hinn 16. febrúar 2011 en forseti Íslands synjaði þeim staðfestingar. Því ber að leggja lögin undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Í atkvæðagreiðslunni verður spurt um eftirfarandi: Lög nr. 13/2011 kveða á um heimild til handa fjármálaráðherra til að staðfesta samninga, sem áritaðir voru í London 8. desember 2010, um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta til breska og hollenska ríkisins á kostnaði af greiðslu lágmarkstryggingar til innstæðueigenda í útibúum Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi og Hollandi og greiðslu eftirstöðva og vaxta af þeim skuldbindingum. Lögin voru samþykkt á Alþingi hinn 16. febrúar 2011 en forseti Íslands synjaði þeim staðfestingar. Eiga lög nr. 13/2011 að halda gildi? Svarkostirnir eru: Já, þau eiga að halda gildi. Nei, þau eiga að falla úr gildi.
Kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna eiga þeir kjósendur sem eiga kosningarrétt til Alþingis, samkvæmt 2. gr. laga nr. 91/2010, sbr. 1. gr. laga nr. 24/2000. Kjörskrár miðast við skráð lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi hinn 19. mars 2011. Kjörskrá liggur frammi í Kaupfélaginu á Drangsnesi. Á vefsíðu Alþingis, althingi.is, undir dálkinum Efni um Icesave, er að finna frumvarpið sem varð að lögum nr. 13/2011, ásamt öllum skjölum er varða meðferð þess á þinginu.
Kjörstjórn Kaldrananeshrepps |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 4 |