| Kjörfundur í Kaldrananeshreppi, kosning til Stjórnlagaþings |
|
Kjörfundur verður laugardaginn 27. nóvember
í Grunnskólanum á Drangsnesi, Aðalbraut 10. Hefst hann kl. 10.00 og lýkur kl. 18.00 Við minnum kjósendur á að kynna sér vel framkvæmd kosninganna í dreifiriti því sem þeir hafa fengið sent heim og að heppilegt væri að nota kynningarseðilinn sem fylgdi með til að hafa allt tilbúið þegar komið er á kjörstað. Einnig er hægt að fylla út og prenta hjálparkjörseðil á http://kosning.is. Þar er auðvelt að leita eftir búsetu og/eða starfsheiti. Kjörskrá liggur frammi í útibúi Kaupfélags Steingrímsfjarðar Borgargötu 2. Bendum einnig á vefinn http://kosning.is. Þar er hægt að fletta upp hvar hver og einn er á kjörskrá eftir kennitölu. Ef einhver vill koma með athugasemdir við kjörskrá óskast þær sendar til sveitarstjórnar.
Kjörstjórn Kaldrananeshrepps.
|