Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps kemur saman til 2. fundar kjörtímabilsins miðvikudaginn 19. ágúst 2026 á skrifstofu sveitarfélagsins í samkomuhúsinu Baldri Drangsnesi.
Fundurinn hefst kl. 20.00 og er öllum opinn.
Dagskrá:
- Fundargerð fyrsta sveitarstjórnarfundar 31.05.2026
- Fundargerðir nefnda
- Aðrar fundargerðir
- Bréf til sveitarstjórnar
- Erindi til sveitarstjórnar varðandi fræðslumál
- Viðhald fasteigna Kaldrananeshrepps
- Framkvæmdir í Kaldrananeshreppi
- Erindi til sveitarstjórnar frá nemendum Grunnskólans á Drangsnesi
- Breytingar á reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga
- Erindi frá innviðaráðuneytinu
- Áheyrnarfulltrúi í Velferðarnefnd Ísafjarðarbæjar
- Skipan í Fulltrúaráð Velferðarnefndar Vestfjarða
- Erindi Minjastofnunar
- Beiðni Kennarasambands Vestfjarða

