Kosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps í mars

Kosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps í mars

19.02.2026

Sveitarstjórnir Kaldrananeshrepps og Árneshrepps hafa tekið ákvörðun um að efna til íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 dagana 14.-28. mars nk.

Álit samstarfsnefndar um sameiningu

Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna hefur skilaði áliti sínu til sveitarstjórnanna, en samkvæmt sveitastjórnarlögum eiga sveitarstjórnirnar að fjalla um álitið án atkvæðagreiðslu. Álitið er byggt á vinnu verkefnisstjórnar um óformlegar viðræður sveitarfélaganna sem meðal annars safnaði upplýsingum um starfsemi sveitarfélaganna til að greina stöðu þeirra og stóð fyrir íbúafundum í sveitarfélögunum í desember 2025.

Framtíðarsýn

Í erindi sínu til sveitarstjórnanna leggur samstarfsnefnd áherslu á að sameiningin, ef af henni verður, fari fram á jafnræðisgrundvelli. Einnig setur nefndin fram hugmyndir um framtíðarsýn fyrir sameinað sveitarfélag sem fela í sér að íbúum verði tryggð nærþjónusta eftir fremsta megni með stafrænum hætti í íbúagátt, að skipuð verði heimastjórn fyrir Árneshrepp til að tryggja áhrif íbúa á nærumhverfi sitt og að skólasel verði starfrækt í Finnbogastaðaskóla. Jafnfram fela hugmyndirnar í sér að skrifstofurými verði til staðar fyrir heimastjórn í Árneshreppi, að þar verði viðvera fulltrúa sveitarfélagsins eftir því sem við á og öllum íbúum verði gert kleift að taka virkan þátt í málefnum sveitarfélagsins í sveitarstjórn og nefndum með aðstoð fjarfundarbúnaðar.


Nánari upplýsingar

Erindi samstarfsnefndar um sameiningu til sveitarstjórnanna og fylgigögn má sjá hér að neðan.
Nánari upplýsingar um tillöguna, álitið og kosningarnar má lesa hér

Leit