
Grunnskóli Drangsness er fámennur skóli þar sem margir árgangar eru í samkennslu og áhersla lögð á einstaklingsmiðað nám. Skólinn leggur áherslu á gott samstarf við grenndarsamfélagið og nágrannaskólana auk útikennslu, ræktun og sköpun.
Í Grunnskóla Drangsness verða um 10 nemendur næsta skólaár á
aldrinum 9 – 15 ára, að auki er verið að stofna samrekin leikskóla undir sama
þaki þar sem 5 - 7 nemendur verða næsta skólaár.
Tveir kennarar auk skólastjóra sinna kennslu í grunnskóla. Tveir starfsmenn eru
í leikskólanum, deildarstjóri og leikskólakennari.
Starfsfólk þarf að búa yfir sveigjanleika, lausnarmiðaðri hugsun og að geta kennt á báðum skólastigum í grunn- og leikskólanum.
Óskað er eftir að ráða þrjá kennara fyrir næsta skólaár.
- Grunnskólakennara á yngra stig í Grunnskólanum í 100% starfshlutfall.
- Grunnskólakennara á eldra stig í Grunnskólanum 100% starfshlutfall.
- Leikskólakennara í leikskólann í 100% starfshlutfall
Menntunar- og hæfniskröfur:
● Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
● Reynsla af kennslu í grunn- og leikskóla er kostur
● Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
● Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
● Sveigjanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
● Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
●
Góð
íslenskukunnátta er skilyrði
Skilyrði við ráðningu er að
viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknum skal skilað til Ástu Þórisdóttur, skólastjóra Grunnskóla Drangsness á netfangið skoli@drangsnes.is.
Nánari upplýsingar veitir Ásta í síma 663-5319 en einnig má senda fyrirspurnir á skoli@drangsnes.is.
Kaldrananeshreppur er eitt af þremur sveitarfélögum á
Ströndum og er þéttbýlisstaður þess þorpið Drangsnes, nokkur byggð er einnig í
Bjarnarfirði.
Það búa um 75 manns á Drangsnesi og er aðal atvinnugrein sveitarfélagsins
fiskvinnsla og sjósókn.
Á Drangsnesi er sundlaug og líkamsrækt, hótel og
matsölustaður, verslun og bensínafgreiðsla, samkomuhús og kapella,
björgunarsveit og slökkvilið.
Í Bjarnarfirði er rekið hótelið Laugarhóll og sundlaug.
Í Kaldrananeshreppi má finna fjölmargar náttúruperlur og má þar nefna Grímsey í
Steingrímsfirði, Gvendarlaug hins góða í Bjarnarfirði og Kerlinguna.
Hólmavík er næsti þjónustukjarni og þar má finna ýmsa þjónustu s.s. þjónustuútibú Vegagerðarinnar, Orkubú Vestfjarða, Vínbúð, Sparisjóð Strandamanna, heilsugæslu og lyfsölu.
