Kaldrananeshreppur óskar eftir starfskröftum við sumarstörf sumarið 2026.
Sundlaugarverðir við Sundlaugina á Drangsnesi
Unnið er frá 10.30 til 19.00 viku í senn eða skv. samkomulagi við vaktstjóra.
Sumaropnun sundlaugarinnar hefst í byrjun júní og gert er ráð fyrir að sumarstarfsmenn hefji þá störf.
Helstu verkefni & ábyrgð:
- Öryggisgæsla og eftirlit.
- Afgreiðsla og aðstoð við viðskiptavini.
- Þrif.
Hæfniskröfur:
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
- Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
- Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
Umsóknum um starfið þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Verkstjóri í unglingavinnuna á Drangsnesi
Starfstími verður ákveðinn í samræmi við verkstjóra en miðað er við sex vikur sem ljúka í lok júlí (föstudaginn 24. júlí).
Helstu verkefni & ábyrgð:
- Ber daglega ábyrgð og yfirumsjón á skipulagningu og starfsemi vinnuskólans.
- Vinnur markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan starfsfólks
- Hefur frumkvæði að lausn verkefna á því sviði sem undir hann heyra og hann starfar að.
- Staðfestir vinnutíma starfsmanna og skilar til launafulltrúa.
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann.
- Sé hæfur til að vera ungmennum fyrirmynd hvað varðar heilbrigðan lífsstíl, stundvísi og tillitssemi.
- Sé sjálfstæður í vinnubrögðum, skipulagður og lausnamiðaður.
- Hafa frumkvæði og drifkraft í starfi.
- Hafa góða færni í samskiptum og hæfni til að stýra fólki.
- Hafa náð 18 ára aldri.
- Bílpróf er kostur.
Umsóknum um starfið þarf að fylgja ferilskrá og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu hreppsins eða á netfangið drangsnes@drangsnes.is
Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri sveitarfélagsins í síma 451-3277 eða á netfangið drangsnes@drangsnes.is

