Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður við Evrópusambandið verður haldinn laugardaginn 29. ágúst 2026.
Kjörfundur hefst kl. 9.00 og stendur til kl. 17.00.
Kosið verður í Grunnskólanum á Drangsnesi Aðalbraut 10, sjá á korti.
Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi. Kjósendur geta kannað hvar þeir eiga að kjósa á vef Þjóðskrár. Kjörskrá liggur frammi til kjördags í Búðinni (Verslunarfélagi Drangsness), Borgargötu 2 á Drangsnesi.
Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki á kjörstað.
Kjörstjórn Kaldrananeshrepps

