Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps samþykkti á fundi sínum 28. september 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Skarðs í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010.
Tillagan tekur til um 8 ha svæðis sem í Aðalskipulagi Kaldrananeshrepps 2010-2030 er skilgreint sem svæði frístundabyggðar FS9 og afmarkar 10 lóðir fyrir frístundahús og setur skilmála um uppbyggingu svæðisins.
Tillagan er aðgengileg í Skipulagsgátt, mál nr. 1139/2026 á slóðinni https://skipulagsgatt.is/issues/2026/1139
Kynningartíminn er frá 1. október til og með 16. nóvember 2026 og er hægt að koma á framfæri skriflegum athugasemdum í Skipulagsgáttinni.

