Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps 1 árs !

Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps er 1 árs í dag. Hún er eins og flest eins árs gömul börn bæði farin að standa upp og ganga með en þarf tíma til að þroskast og dafna.
Félagsmálastjóri var ráðinn í 70 % starf frá 1. febrúar 2011 og hefur byggt upp félagsþjónustuna síðasta árið. Þeir málaflokkar sem félagsþjónustan sinnir er, barnavernd, félagsleg ráðgjöf, félagsleg heimaþjónusta, fjárhagsaðstoð, málefni aldraðra og málefni fatlaðra.

Nánar...
 
Merki Félagsþjónustunnar

felagstjonustaNýlega var haldin samkeppni um kennimerki „lógó“ félagsþjónustunnar og voru þó nokkuð margar tillögur sendar inn. Valið var erfitt þar sem allar tillögurnar voru vandaðar, hugmyndaríkar og skemmtilegar. Hins vegar þarf alltaf að velja eina og bar Friðlaugur Jónsson sigur úr býtum. Tillaga hans var með skírskotun í galdratákn og byggðasögu svæðisins með nútímalegri nálgun. Upphafsstafir Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla (FSR) eri í kennimerkinu auk þess sem 4 hlutar mynda þau fjögur sveitarfélög sem mynda félagsþjónustuna en það eru Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur og Strandabyggð. Græni hlutinn táknar notendur félagsþjónustunnar.

Nánar...
 
Námsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða kominn út
namsvisirNámsvísir Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veturinn 2011-2012 er kominn út og verður dreift í öll hús á Vestfjörðum á næstu dögum. Þar er að finna yfirlit yfir þau námskeið og námsleiðir sem búið að er ákveða að bjóða upp á í vetur. Eins og alltaf er fjölbreytnin í fyrirrúmi og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. Rétt er að hafa í huga að alltaf bætist eitthvað við sem ekki hefur náð inn í Námsvísinn. Það er því um að gera að fylgjast með á vef Fræðslumiðstöðvarinnar þar sem er að finna upplýsingar um öll námskeið. Hægt er að skrá sig á námskeið á vef Fræðslumiðstöðvarinnar  en einnig er hægt að hafa samband í síma 456 5025.
 
Reglur um liðveislu og félagslega heimaþjónustu

Velferðarnefnd Stranda og Reykhólahrepps og sveitarstjórnir Árneshrepps, Kaldrananeshrepps, Reykhólahrepps og Strandabyggðar hafa samþykkt reglur um félagslega heimaþjónustu og liðveislu. Samþykkt var að byrja að taka tekjutengt gjald fyrir félagslega heimaþjónustu eins og hjá öðrum sveitarfélögum landsins. Reglurnar verða settar inn á heimasíðu sveitarfélaganna ásamt umsóknareyðublöðum.
Sækja skal um þjónustuna til félagsmálastjóra.

Með kveðju,

Hildur Jakobína Gísladóttir
Félagsmálastjóri Stranda- og Reykhólahrepps
Höfðagötu 3, 510 Hólmavík
Sími: 451-3510 / 842-2511
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Dagskrá Bryggjuhátíðar 2011
10:00-11:00 Dorgveiði Kokkálsvík
Grímseyjarsund - Sjósundgarpar stinga sér til sunds frá Grímsey og synda í land.
11:00 Grímseyjarsiglingar með Sundhana
12:30 Sjávarréttasmakk við frystihúsið og nikkan hljómar. Markaðsstemming í tjaldinu.
13:00 Grásleppusýning í Framtíðinni -fyrir utan Forvaða. Myndlistarsýningar, gömlu myndirnar og kaffihús í skólanum. Strandahestar. Hoppukastali.
14:30 Vináttulandsleikur í fótbolta Drangsnes – Hólmavík á fótboltavellinum
16:00 Söngvarakeppni krakkanna, Samkomuhúsinu Baldri
18:00-19:30 Grillveisla, Samkomuhúsinu Baldri
20:30 Kvöldskemmtun í Samkomuhúsinu Baldri
22:00 Varðeldur með Ragga Torfa við fótboltavöllinn
23:00 Jogvan Hansen skemmtir á Malarkaffi
23.30 Bryggjuhátíðarballið – Stuðlabandið sér um stuðið
 
fjolmenningarsetur

Spurningin

Hvað er skemmtilegast á Bryggjuhátíð?
 
Allur réttur áskilinn © 2005 - 2012 Kaldrananeshreppur.