Íbúafundur 9. mars 2026
Mánudaginn 9. mars 2026 var haldinn íbúafundur í samkomuhúsinu Baldri á Drangsnesi þar sem tillaga um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps, álit samstarfsnefndar og fyrirkomulag íbúakosninga var kynnt.
Í lok fundarins var þátttakendum boðið að bera upp spurningar og sköpuðust líflegar umræður.
Hlaða má glærum fundarins hér.
Hér fyrir neðan má sjá upptöku af fundinum á Youtube.
