Sameining Kaldrananeshrepps & Árneshrepps
Niðurstöður íbúakosninga
Sveitarstjórnir Árneshrepps og Kaldrananeshrepps samþykktu að láta fara fram íbúakosningu um tillögu um sameiningu sveitarfélaganna dagana 14.-28. mars 2026.
Niðurstaða kosninganna var sú að sameining var samþykkt í báðum sveitarfélögum.
Sameiningarviðræður
Sveitarstjórnir Kaldrananeshrepps og Árneshrepps tóku ákvörðun um að efna til íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 dagana 14.-28. mars 2026.
Hægt er að sjá fyrirhögun kosninganna hér.
Hægt er að sjá fyrirhögun kosninganna hér.
Álit samstarfsnefndar um sameiningu
Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna skilaði áliti sínu til sveitarstjórnanna, en samkvæmt sveitastjórnarlögum eiga sveitarstjórnirnar að fjalla um álitið án atkvæðagreiðslu.
Álitið er byggt á vinnu verkefnisstjórnar um óformlegar viðræður sveitarfélaganna sem meðal annars safnaði upplýsingum um starfsemi sveitarfélaganna til að greina stöðu þeirra og stóð fyrir íbúafundum í sveitarfélögunum í desember 2025.
Framtíðarsýn
Í erindi sínu til sveitarstjórnanna leggur samstarfsnefnd áherslu á að sameiningin, ef af henni verður, fari fram á jafnræðisgrundvelli.
Einnig setur nefndin fram hugmyndir um framtíðarsýn fyrir sameinað sveitarfélag sem fela í sér að íbúum verði tryggð nærþjónusta eftir fremsta megni með stafrænum hætti í íbúagátt, að skipuð verði heimastjórn fyrir Árneshrepp til að tryggja áhrif íbúa á nærumhverfi sitt og að skólasel verði starfrækt í Finnbogastaðaskóla. Jafnfram fela hugmyndirnar í sér að skrifstofurými verði til staðar fyrir heimastjórn í Árneshreppi, að þar verði viðvera fulltrúa sveitarfélagsins eftir því sem við á og öllum íbúum verði gert kleift að taka virkan þátt í málefnum sveitarfélagsins í sveitarstjórn og nefndum með aðstoð fjarfundarbúnaðar.
Nánari upplýsingar
Erindi samstarfsnefndar um sameiningu til sveitarstjórnanna og fylgigögn má sjá hér.
Íbúafundur 9. mars 2026
Hér má nálgast glærur & upptöku frá íbúafundi Kaldrananeshrepps sem haldinn var 9. mars 2026
Fundargerðir samstarfsnefndar Árneshrepps og Kaldrananeshrepps
Hér er hægt að skoða og sækja fundargerðir samstarfsnefndar Árneshrepps og Kaldrananeshrepps
| Dagsetning fundar |
Sækja eða lesa fundargerð |
|---|---|
| 1. fundur samstarfsnefndar 13. febrúar 2026 | Opna eða sækja skjal |
| 2. fundur samstarfsnefndar 20. febrúar 2026 | Opna eða sækja skjal |
| 3. fundur samstarfsnefndar 5. mars 2026 | Opna eða sækja skjal |
Fundargerðir verkefnisstjórnar um óformlegar sameiningarviðræður Árneshrepps og Kaldrananeshrepps
Hér er hægt að skoða og sækja fundargerðir verkefnisstjórnar um óformlegar sameiningarviðræður Árneshrepps og Kaldrananeshrepps
| Dagsetning fundar |
Sækja eða lesa fundargerð |
|---|---|
| 1. fundur verkefnisstjórnar 24. október 2025 | Opna eða sækja skjal |
| 2. fundur verkefnisstjórnar 31. október 2025 | Opna eða sækja skjal |
| 3. fundur verkefnisstjórnar 7. nóvember 2025 | Opna eða sækja skjal |
| 4. fundur verkefnisstjórnar 21. nóvember 2025 | Opna eða sækja skjal |
| 5. fundur verkefnisstjórnar 28. nóvember 2025 | Opna eða sækja skjal |
| 6. fundur verkefnisstjórnar 5. desember 2025 | Opna eða sækja skjal |
| 7. fundur verkefnisstjórnar 12. janúar 2026 | Opna eða sækja skjal |
| Minnisblað fyrir fund með innviðaráðherra | Opna eða sækja skjal |
| Glærur fyrir fund með innviðaráðherra | Opna eða sækja skjal |
SAMEININGARVIÐRÆÐUR
Dreifibréf vegna íbúakosningar
Sveitarstjórnir Árneshrepps og Kaldrananeshrepps hafa samþykkt að láta fara fram íbúakosningu um tillögu um sameiningu sveitarfélaganna dagana 14. - 28. mars 2026.



Dreifibréf á pólsku

