Íbúakosningar um sameiningu Kaldrananeshrepps & Árneshrepps
Sveitarstjórnir Kaldrananeshrepps og Árneshrepps tóku ákvörðun um að efna til íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 dagana 14.-28. mars 2026.
Hér má sjá fyrirkomulag umræddra kosninga.

Um hvað er kosið?
Kosið er um tillögu um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps. Samstarfsnefnd um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps hefur lagt fram álit sitt og helstu forsendur til umræðu í sveitarstjórnum samkvæmt 2. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Hverjir mega kjósa?
Rétt til þátttöku í íbúakosningu eiga:
- Íslenskir, danskir, finnskir, sænskir eða norskir ríkisborgarar sem náð hafa 16 ára aldri á lokadegi atkvæðagreiðslu og eiga skráð lögheimili í því sveitarfélagi þar sem íbúakosning fer fram á hádegi 22 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst.
- Erlendir ríkisborgarar, sem hafa átt skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir lokadag atkvæðagreiðslu, og uppfylla að öðru leyti skilyrði fyrsta töluliðar.

Kjörskrá
Kjörskrá er gefin út 20 dögum áður en kosning á að hefjast og miðast við búsetu í viðkomandi sveitarfélagi á hádegi 22 dögum fyrir upphaf atkvæðagreiðslu.
Eftir að kjörskrá hefur verið gefin út er hægt að sjá hvort og hvar kjósandi getur kosið á vef Þjóðskrár sem finna má hér.
Hvernig er kosið?
Hægt er að kjósa á skrifstofum sveitarfélaganna á reglulegum opnunartíma þeirra,
á kjörstöðum á opnunartíma þeirra á tímabilinu eða með póstatkvæðagreiðslu.
Í Árneshreppi:
Skrifstofa Árneshrepps er opin á virkum dögum frá kl. 13:00 til 17:00.
Að auki verður kjörstaður opinn í Félagsheimilinu í Árnesi sem hér segir:

- Laugardaginn 14.mars frá kl. 12:00 – 14:00
- Laugardaginn 28.mars frá kl. 12:00 – 16:00.
Í Kaldrananeshreppi:
Afgreiðsla í þjónustuveri skrifstofu Kaldrananeshrepps er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:00 til 16:00 og föstudaga frá kl. 09:00 til 13:00.
Að auki verður kjörstaður opinn í Grunnskóla Drangsness sem hér segir:
- Laugardaginn 14. mars frá kl. 12:00 til 14:00
- Laugardaginn 21. mars frá kl. 12:00 til 14:00
- Laugardaginn 28. mars frá kl. 10:00 til 16:00.
Póstatkvæðagreiðsla
Þeir sem ekki eiga þess kost að mæta á kjörstað geta greitt atkvæði í póstkosningu á tímabilinu 14. til 28. mars.
Atkvæðagreiðsla með pósti fer þannig fram að kjósandi óskar eftir að fá kjörgögn ásamt leiðbeiningum um skil send til sín í pósti eða tölvupósti. Kjósandi þarf svo að koma atkvæði sínu í hendur kjörstjórnar fyrir lokun kjörstaða kl. 16:00 þann 28. mars nk.
Til að óska eftir kjörgögnum þarf að senda tölvupóst á með nafni og kennitölu á drangsnes@drangsnes.is.