Leikskólinn á Drangsnesi
Leikskólinn á Drangsnesi er staðsettur í húsnæði Grunnskólans á Drangsnesi, að Aðalbraut 10. Á leikskólanum er ein deild fyrir öll börn á leikskólaaldri í Kaldrananeshreppi.
Lögð er áhersla á að skapa hlýlegt, öruggt og hvetjandi umhverfi þar sem börn fá tækifæri til að leika sér, læra og þroskast.
Leikskólinn er hluti af skólasamfélagi Kaldrananeshrepps og leggur áherslu á góð tengsl við nærsamfélagið og umhverfið.
