Nýir íbúar
Verið velkomin í Kaldrananeshrepp!
Kaldrananeshreppur býður nýja íbúa velkomna í hlýlegt og samheldið samfélag á Ströndum. Þar fara kyrrð, náttúrufegurð og nánd við samfélagið saman og skapa einstakt umhverfi til búsetu fyrir fólk á öllum aldri.
Hér má finna helstu upplýsingar fyrir nýja íbúa í Kaldrananeshreppi:



Fjölskyldan

Flutningur á lögheimili
Flutningur á lögheimili er tilkynntur rafrænt á vef Þjóðskrár og skal það gert innan sjö daga eftir flutninga.
Ef flutt er til Íslands frá útlöndum þarf að mæta með löggild skilríki, í eigin persónu til Þjóðskrár í Reykjavík eða hjá næsta lögreglustjóra. Í Kaldrananeshreppi er þetta gert hjá afgreiðslu lögregluembættisins á Vestfjörðum, Skeiði 2, 510 Hólmavík.

Upplýsingagjöf til íbúa
Á heimasíðu Kaldrananeshrepps er mikið af gagnlegum upplýsingum um þjónustu sem stendur íbúum til boða.
Á forsíðunni má finna Umsóknir & er þar hægt að óska eftir lóð og leiguhúsnæði.
Undir flokkum heimasíðunnar er til að mynda hægt að finna upplýsingar um skrifstofu sveitarfélagsins, Verslunarfélag Drangsnes, sundstaði & félög svo eitthvað sé nefnt.
